Við sérhæfum okkur í öllu því sem viðkemur kökugerð. Við leggjum metnað okkar í að gleðja bæði gesti og gestgjafa bæði hvað varðar bragð og útlit. Hjá okkur getur þú fengið heimsþekktar kökutegundir, þar má nefna Sacher tertur, danskar ávaxtatertur, Fredrik og Mary rjómatertur, kransakökur, franskar og belgískar súkkulaðikökur, í öllum stærðum sem henta Í afmælisveislur og til hverskyns tilefna.









